Náttúruverndarsamtök Íslands
Forsíða Náttúruvernd Loftslagsbreytingar Lífríki sjávar Samtökin Fyrirspurn
Lög NSÍ
Stefna NSÍ
Stjórn NSÍ
Fundir NSÍ
Samtökin
Styðja samtökin
Starfsmenn
Áhugaverðir tenglar
Lög NSÍ


Lög Náttúruverndarsamtaka Íslands:

1. grein.
Samtökin heita Náttúruverndarsamtök Íslands og varnarþing þeirra er í Reykjavík. Starfssvæði félagsins er landið allt. Samtökin starfa óháð opinberum aðilum og hagsmunaaðilum hvers konar.

2. grein.
Stofnfélagar eru þeir sem undirrita stefnuyfirlýsingu Náttúruverndarsamtaka Íslands fyrir 30. september 1997. Félagar geta orðið allir lögráða einstaklingar sem aðhyllast markmið samtakanna og vilja starfa í samræmi við lög þess.

3. grein.
Markmið samtakanna er að vera málsvari umhverfis- og náttúruverndarsjónarmiða. Þessum markmiðum hyggist félagið ná með því að:
- Veita stjórnvöldum og framkvæmdaraðilum gagnrýnið aðhald.
- Tryggja upplýsingastreymi til almennings.
- Vinna að bættri lagasetningu í þágu umhverfis- og náttúruverndar.
- Efla samstarf við systursamtök hérlendis sem erlendis.
- Færa alþjóðlega umræðu nær almenningi.
- Efla vitund almennings um umhverfismál og náttúruvernd.
- Fræða almenning um gildi náttúrunnar.
- Stuðla að því að stjórnvöld virði alþjóðlegar skulbindingar í umhverfismálum.
- Afla fjár til starfsemi sinnar.

4. grein.
a) Aðalfund Náttúruverndarsamtaka Íslands skal halda fyrir 1. maí ár hvert. Til aðalfundar skal boða með tölvupósti og í víðlesnu dagblaði með viku fyrirvara. Allir skuldlausir félagar samtakanna hafa kosningarétt og kjörgengi á aðalfundi.

b) Dagskrá aðalfundar skal vera:
- Setning aðalfundar.
- Kjör fundarstjóra og annarra embættismanna fundarins.
- Skýrsla stjórnar og umræður um hana.
- Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til afgreiðslu.
- Ákveðið árgjald.
- Lagabreytingar.
- Kjör tveggja endurskoðenda.
- Kjör stjórnar.
- Önnur mál.

c)Lagabreytingatillögur skulu berast stjórn skriflega eigi síðar en viku fyrir aðalfund og skuli þær liggja frammi á fundinum. Til að lagabreytingar nái fram að ganga þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða.

d)Reikningsár samtakanna er almannaksárið.

5. grein.
Stjórn samtakanna skal kjörin ár hvert á aðalfundi og hún skal skipuð 5 mönnum. Stjórn skipti með sér verkum. Auk þess skulu kjörnir tveir stjórnarmenn til vara og eiga þeir rétt á setu á stjórnarfundum.

6. grein.
Æðsta vald er í höndum lögmæts aðalfundar. Stjórn annast málefni samtakanna milli aðalfunda og gerir grein fyrir málum á félagsfundum.

7. grein.
Stjórn samtakanna boðar til félagsfunda þegar þurfa þykir, eða ef 1/3 hluti félagsmanna óskar þess. Dagskrár skal geta í fundarboði.

Samþykkt á framhaldsstofnfundi þ. 29. maí 1997.

Samþykkt breytingartillaga á aðalfundi 2003.
8. gr. Verði Náttúruverndarsamtök Íslands lögð niður renni eignir samtakanna til umhverfismenntar barna í samræmi við tilmæli þess aðalfundar sem ákveður að leggja niður samtökin. Hafa skal samráð við menntamálaráðuneytið um hvernig skuli styrkja umhverfismennt.

© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is