Náttúruverndarsamtök Íslands
Forsíða Náttúruvernd Loftslagsbreytingar Lífríki sjávar Samtökin Fyrirspurn
Greinar
Þjórsárver
Sigrún Helgadóttir hlaut náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti
25. apríl 2010

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigrún Helgadóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti en þetta var í fyrsta sinn sem sú viðurkenningin er afhent. Umhverfisráðherra ákvað að veita viðurkenninguna í tilefni af tuttugu ára afmæli umhverfisráðuneytisins í ár.
Sigrún Helgadóttir hefur helgað starfskrafta sína umhverfismálum, ekki síst við að miðla fræðslu til barna og ungmenna en einnig hefur hún lagt mikla áherslu á mikilvægi þess að auka skilning almennings á náttúru og umhverfi.

Á árunum 2000 til 2008 var Sigrún verkefnisstjóri Grænfánaverkefnisins. Hún skipulagði það frá upphafi og stýrði því þar til þátttökuskólarnir voru komnir yfir eitt hundrað talsins og á öllum skólastigum.

Sigrún hefur þýtt og staðfært námsefni í umhverfisfræðum og einnig skrifað námsefni í náttúru- og umhverfisfræðum, bæði fyrir nemendur og kennara. Þá hefur hún samið vandaða og afar fróðlega bók um Jökulsárgljúfur, Dettifoss og Ásbyrgi en hún var þar landvörður. Hún var fyrsti landvörður þjóðgarðsins í Jökulsárgljúfrum og mótaði þá starf landvarða og beindi því inn á þá braut að landverðir túlkuðu náttúru fyrir gesti til að auka skilning þeirra á henni.

Að auki hefur Sigrún starfað með ýmsum félögum að umhverfismálum og hefur einnig komið þekkingu sinni á framfæri á vettvangi stjórnmálanna. Hún starfaði með hópi áhugafólks um umhverfismál, Græna hópnum, sem lét til sín taka og hvatti meðal annars mjög til stofnunar sérstaks ráðuneytis umhverfismála. Síðar var hún varaþingkona Kvennalistans 1987-1991 og 1994-1995. Hún bar þá fram ýmsar hugmyndir varðandi umhverfismál og átti meðal annarra stóran þátt í að semja þingmál um stofnun sérstaks umhverfisráðuneytis sem Kvennalistinn lagði fram á Alþingi. Einnig bar hún fram mörg ný sjónarmið, til dæmis um grænan hagvöxt, nýja skilgreiningu hagvaxtarhugtaksins og kvenlæga vistfræði.

© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is