|
|
 |
 |
20. janúar 2010
|
 |
 Skorað er á ríkisstjórnina, einkum forsætisráðherra, umhverfisráðherra og iðnaðarráðherra,
að taka saman yfirlit og gera rækilega grein fyrir því hvaða háhitasvæði og vatnsföll verður nauðsynlegt að virkja til þess að afla orku fyrir 360 þúsund tonna álverksmiðju í Helguvík.
Orkuþörf þessa fyrirhugaða álvers er um 650 MW eða sem nemur nærri einni Kárahnjúkavirkjun. Orkuvinnsla í slíku umfangi getur ekki komið til án þess að henni fylgi ráðstöfun fjölmargra dýrmætra hverasvæða og vatnsfalla sem mörg hver ættu heldur að njóta verndar.
Með vísan í fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að hún muni „beita sér fyrir opinni stjórnsýslu, auknu gagnsæi og lýðræðisumbótum” heitum við á ráðherrana að upplýsa þjóðina um þessi efni.
Græna Netið Náttúruverndarsamtök Íslands Náttúruverndarsamtök Suðurlands Sól í Straumi Sól á Suðurlandi Sól á Suðurnesjum
|
|
 |
© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is |
 |
|