Náttúruverndarsamtök Íslands
Forsíða Náttúruvernd Loftslagsbreytingar Lífríki sjávar Samtökin Fyrirspurn
Greinar
Þjórsárver
YFIRLÝSING
17. nóvember 2009

Eftirtalin samtök lýsa vanþóknun á ómálefnalegri auglýsingaherferð fyrirtækja á Suðurnesjum gegn ákvörðun umhverfisráðherra um Suðvesturlínur. Álver í Helguvík með allt að 360 þúsund tonna ársframleiðslu með tilheyrandi orkuöflun og umhverfisáhrifum er ekki einkamál Suðurnesjamanna. Ekki er útséð með að hægt verði að útvega alla þá orku sem fyrirtækið telur sig þurfa,auk þess sem orkuþörf Norðuráls í Helguvík hefur verið ranglega metin í opinberum gögnum.

  • Álverið myndi taka til sín nær alla háhitaorku sem fyrirséð er að aflað verði í nágrenni höfuðborgarsvæðisins, auk virkjana í neðri Þjórsá.


  • Jarðvarmavirkjanir sem álverið þarf mundu auka á brennisteinsmengun á höfuðborgarsvæðinu en hún fer nú þegar yfir heilbrigðismörk við ákveðnar aðstæður.


  • Línulagnir hefðu víða áhrif, m.a. á vatnsverndarsvæði höfuðborgarbúa.


  • Með Urriðafossvirkjun væri framtíð eins stærsta villta laxastofns Íslands stefnt í voða - en sá stofn býr í Þjórsá.


  • Krafa fyrirtækja á Suðurnesjum um orku til álvers í Helguvík er á við heila Kárahnjúkavirkjun á 100% láni á ábyrgð orkufyrirtækja í eigu þjóðarinnar.



  • Íslendingar hafa horft upp á skammsýni, græðgi og heimsku í aðdraganda hruns hins íslenska efnahagskerfis. Stafar það af fúski, agaleysi og veikburða stjórnmála- og eftirlitsstofnunum gagnvart yfirgangi hagsmunahópa. Herferð fyrirtækja á Suðurnesjum í þágu alþjóðlegra stórfyrirtækja er ábyrgðarlaus og ómálefnalegt innlegg í umræðuna.



    Náttúruverndarsamtök Vestfjarða
    Náttúruverndarsamtök Austurlands (NAUST)
    SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi
    Sól á Suðurnesjum
    Sól á Suðurlandi
    Framtíðarlandið
    Sól í Straumi
    Náttúruverndarsamtök Suðurlands
    Náttúruverndarsamtök Íslands


    Frekari upplýsingar:
    Þröstur Sverrisson
    Formaður stjórnar Framtíðarlandsins
    framtidarlandid@framtidarlandid.is
    GSM 892 8550

    Árni Finnsson
    Náttúruverndarsamtök Íslands
    arnif@mmedia.is
    GSM 897 2437
© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is