Náttúruverndarsamtök Íslands
Forsíða Náttúruvernd Loftslagsbreytingar Lífríki sjávar Samtökin Fyrirspurn
Greinar
Fræðsluefni
Athugasemd við ummæli Vigdísar Hauksdóttur
9. október 2009

Frá og með 2013 mun losun gróðurhúsalofttegunda vegna álframleiðslu falla undir tilskipun ESB um viðskipti með gróðurhúsalofttegundir. Sérstök undanþága fyrir Ísland verður því ekki í boði á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Þingmenn ættu að kynna sér málavöxtu áður en þeir hlaupa í fjölmiðla með staðlausa stafi líkt og Vigdís Hauksdóttir gerði fyrr í dag.

Við bætist að Þórunn Sveinbjarnardóttir, Kolbrún Halldórsdóttir og Svandís Svavarsdóttir hafa í embætti umhverfisráðherra sóst eftir að Ísland verði þátttakandi í loftslagskerfi ESB.
© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is