|
|
 |
 |
 |
|
|
 |
  Hér er að finna fræðsluefni um loftslagsbreytingar. Reynt verður að fylgjast með því sem er að gerast í heiminum varðandi loftslagsbreytingar og birta hér eða tengla í slíkt efni.
|
 |
 |
Von um samning í Kaupmannahöfn 17. desember 2009 |
Samningar í Kaupmannahöfn eru nú á hástigi – “high level segment” á máli Sameinuðu þjóðanna. Að þessu sinni eru það þjóðhöfðingarnir sjálfir – í fyrsta skipti – sem stýra viðræðum. Ekki umhverfisráðherrar eins og venjan er. Alls eru 130 þjóðhöfðingar eru komnir til Kaupmannahafnar eða á leið hingað. Samtals eiga 193 ríki með samninganefndir hér í Kaupmannahöfn. |
| nánar -> |
 |
Ungliðahreyfing Hjálparstarfs kirkjunnar lætur til sín taka í loftslagsmálum 12. nóvember 2009 |
Fulltrúar Breytenda, ungliðahreyfingar Hjálparstarfs kirkjunnar, afhentu Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra, undirskriftir sem hreyfingin safnaði undir yfirskriftinni hlýnun jarðar er mannréttindamál. Undirskriftunum hafði verið safnað á íspinnaprik við ýmsa gjörninga og atburði í sumar og haust og úr þeim var byggður hvirfilbylur sem er táknrænn fyrir þann vanda sem steðjar að jörðinni, verði ekkert að gert.
|
| nánar -> |
 |
Athugasemd við ummæli Vigdísar Hauksdóttur 9. október 2009 |
Frá og með 2013 mun losun gróðurhúsalofttegunda vegna álframleiðslu falla undir tilskipun ESB um viðskipti með gróðurhúsalofttegundir. Sérstök undanþága fyrir Ísland verður því ekki í boði á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn. Þingmenn ættu að kynna sér málavöxtu áður en þeir hlaupa í fjölmiðla með staðlausa stafi líkt og Vigdís Hauksdóttir gerði fyrr í dag.
|
| nánar -> |
 |
|
 |
|
 |
© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is |
 |
|