Ályktanir 61. fundar Alþjóðahvalveiðiráðsins í Madeira 22. - 26. júní 25. júní 2009
Frá og með 60. ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Santiago de Chile í fyrra hafa engar ályktanir verið samþykktar nema samhljóða. Formaður ráðsins, Dr. William Hogarth vill með þessu forðast atkvæðagreiðslur um ályktanir sem oftar en ekki fordæma annan hvorn deiluaðilann, þau ríki sem eru andvíg hvalveiðum og/eða þau ríki sem styðja hvalveiðar.
Markmið formannsins er að skapa traust meðal aðildarríkja til að ná samstöðu um framtíð ráðsins.
Á þessu þingi hafa tvær samhljóða ályktanir verið samþykktar.