Náttúruverndarsamtök Íslands
Forsíða Náttúruvernd Loftslagsbreytingar Lífríki sjávar Samtökin Fyrirspurn
Arnþór Garðarsson: Athugasemdir við skýrslu Hagfræðistofnunar
10. apríl 2010
Sprengja stíflur til að bjarga laxastofni
16. nóvember 2009
Um markað fyrir hvalkjöt í Japan - Fiskifréttir 3. september
3. september 2009
Ályktanir 61. fundar Alþjóðahvalveiðiráðsins í Madeira 22. - 26. júní
25. júní 2009
Um pólitíkina í Alþjóðahvalveiðiráðinu
24. júní 2009
Hvalaskoðun veltir milljörðum
23. júní 2009
Fleiri hvalir veiddir í Norður Atlantshafi en af Japönum
21. júní 2009
Bréf til Steingríms J. Sigfússonar
4. apríl 2009
Hvalaskoðun veltir milljörðum
23. júní 2009

Áætlað er í skýrslu, sem birt var í tengslum við ársfund Alþjóðahvalveiðiráðsins, að árlegar tekjur af hvalaskoðun nemi um 2,1 milljarði dala um allan heim, jafnvirði 270 milljarða króna.

Skýrslan var gerð á vegum Alþjóða dýraverndarsjóðsins, Ifaw. Þar segir að hvalveiðiþjóðir myndu hagnast á því, að hætta hvalveiðum og leggja þess í stað áherslu á hvalaskoðun. Alþjóða náttúruverndarsjóðurinn, WWF, hefur einnig birt skýrslu þar sem niðurstaðan er að tap sé á hvalveiðum Japana og Norðmanna.

Tómas Heiðar, formaður íslensku sendinefndarinnar á ársfundi hvalveiðiráðsins á Madeira, segir hins vegar við breska ríkisútvarpið BBC, að þessar atvinnugreinar hafi þróast samhliða undanfarin ár.

„Ásakanir um að hvalveiðar skaði hvalaskoðun hafa ekki reynst réttar," segir hann. „Þvert á móti hefur hvalaskoðun verið vaxandi atvinnugrein á síðustu árum eftir að atvinnuhvalveiðar voru hafnar að nýju árið 2006.

Búið er að veiða 15 hrefnur og sex langreyðar á Faxaflóa í sumar.

Í skýrslu Ifaw er niðurstaðan sú, að tekjur af hvalaskoðun hafi tvöfaldast á síðasta áratug. Mestur er vöxturinn í Asíu. Árið 2008 hafi 13 milljónir manna farið í sjóferðir til að skoða hvali í 119 löndum.

Sjá frétt mbl.is.
Sjá frétt BBC um hvalaskoðun.
© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is