|
|
 |
 |
1. apríl 2009
|
 |
 Hvalaskoðunarsamtök Íslands hafna alfarið þeim tillögum sem hvalveiðimenn og starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar setja fram um “afmörkun svæða til hvalaskoðunar”. Tillagan ber þess ríkulega merki að Hafró hefur frá upphafi verið málpípa hvalveiðimanna og hvalveiðistefnu stjórnvalda hverju sinni. Núverandi sjávarútvegsráðherra setti það í hendur Hafró að gera tillögu að afmörkuðu svæði fyrir hvalaskoðun en þar á bæ var ekkert tillit tekið til beiðni Hvalaskoðunarsamtakanna um lágmarks griðland.
Ferðaþjónusta á Íslandi er ein af þremur meginstoðum efnahagslífsins og ber að virða sem slíka. Ef það er vilji stjórnvalda, þar á meðal núverandi sjávarútvegsráðherra, að ferðaþjónustan njóti sannmælis sem alvöru atvinnugrein ber ráðherra að hafna þessari tillögu með öllu. Hvalaskoðunarsamtök Íslands krefjast þess að sjávarútvegsráðherra skipi nefnd óháðra vísindamanna sem er fær um að koma með tillögu um fyrirhugaða afmörkun svæða fyrir hvalaskoðun. Taka þarf mið af raunverulegum hagsmunum Íslands og ört vaxandi ferðaþjónustu sem atvinnugrein. Verði farið að tillögum Hafró má reikna með að hrefnuskoðun við Ísland leggist af innan fárra ára.
Nánari upplýsingar
Hvalaskoðunarsamtök Íslands
Rannveig Grétarsdóttir Sími: 824 1080 Hörður Sigurbjarnarson Sími: 894 5351
|
|