Náttúruverndarsamtök Íslands
Forsíða Náttúruvernd Loftslagsbreytingar Lífríki sjávar Samtökin Fyrirspurn
Greinar
Þjórsárver
Greinar
Fræðsluefni
Greinar
Hvalveiðar
Þingvallavatn - Dýrmætt vistkerfi undir álagi - Hilmar J. Malmquist
31. janúar 2012
Þingvallavatn er stærsta lindavatn landsins. Mikil jarðfræðileg og líffræðileg fjölbreytni og sérstaða, tærleiki vatnsins og hinn blái litur gera það fágætt á hnattræna vísu. Í máli Hilmars kom fram að vatnið er viðkvæmur viðtaki mengunar, ekki síst niturs en ef magn þess eykst mikið umfram náttúruleg mörk er hætta á auknum vexti þörunga, minni tærleika og breytingum á þróun vistkerfis vatnsins.
Sjá fyrirlestur Hilmars Malmquists hér.
nánar ->
Sameiginleg umsögn félagasamtaka um Rammaáætlun
12. nóvember 2011
Félagasamtök um nátturuvernd hafa sent inn sameiginlega umsögn um drög að tillögu til þingsályktunar um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.
Hina sameiginlegu umsókng má lesa hér.
nánar ->
Stíflur í ám og áhrif þeirra á fiskstofna
31. október 2011
Fyrirlestur um stíflur í ám og tilraunir til að greiða för sjógöngufiska á áhrifasvæðum stíflumannvirkja verður haldinn í Háskólabíói, Sal 2, kl. 11:50 – 13.20, fimmtudaginn 3. nóvember 2011.
nánar ->
Skráning á umhverfisþing
3. október 2011
Sjá um skráningu á Uhverfisþing.
nánar ->
Telja línur í Veiðivötn umhverfismatsskyldar
29. september 2011
"Við mælumst eindregið til þess að þessi framkvæmd fari í umhverfismat," segir Hilmar J. Malmquist, stjórnarmaður í Náttúruverndarsamtökum Íslands, um áætlaða lagningu raflínu og ljósleiðara frá Vatnsfelli í Veiðivötn og Snjóöldu.
Sjá Fréttablaðið.
nánar ->
Ályktun Fuglaverndar, Landverndar og Náttúruverndarsamtaka Íslands vegna vegagerðar í Gufudalssveit
22. september 2011
Landvernd, Fuglavernd og Náttúruverndarsamtök Íslands lýsa yfir stuðningi við þá ákvörðun Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra að hlífa Teigsskógi og leggja til vegagerð eftir svokallaðri D-leið í Gufudalssveit með göngum undir Hjallaháls.
nánar ->
Árósasamningurinn lögfestur á Alþingi
19. september 2011
...allar stjórnvaldsákvarðanir er lúta að veitingu, endurskoðun og afturköllun leyfa vegna framkvæmda sem falla undir lög um mat á umhverfisáhrifum, verði kæranlegar til úrskurðarnefndarinnar um leið og leyfisveitingavaldið færist til viðeigandi undirstofnana.
Sjá fréttatilkynningu umhverfisráðuneytisins hér.
nánar ->
Björgum Reykjanesskaganum! - fundur 20. september 2011
13. september 2011
Fundur áhugafólks um björgun Reykjanesskagans verður haldinn á Café Aroma í Verslunarmiðsöðinni Firði í Hafnarfirði á annari hæð, Fjarðargötu 13.-15., klukkan 20:00, þriðjudaginn 20. september 2011.
nánar ->
Um niðurstöðuna í Durban
14. desember 2011
Mjög jákvætt er að á loftslagsþingi Sameinuðu þjóðanna í Durban varð samkomulag um að þau ríki sem mest losa af gróðurhúsalofttegundum hefji á ný samningaviðræður um lagalega bindandi sáttmála. Eftir loftslagsþing Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn fyrir tveimur árum virtust öll sund lokuð. Samningaviðræðum skal lokið fyrir 2015 en munu ekki hafa áhrif fyrr en eftir 2020, sem er of seint. Sjá loftslag.is og um afleiðingar hlýnunar andrúmsloftsins.
nánar ->
Málþing um loftslag og lífríki, föstudaginn 2. desember
1. desember 2011
Umhverfisstofnun stendur fyrir málþingi um áhrif loftslagsbreytinga á náttúrufar. Málþingið sem ber yfirskriftina loftslag og lífríki verður haldið föstudaginn 2. desember klukkan 13 í Hvammi á Grand hótel, Sigtúni 38. Sjá dagsrká hér
nánar ->
Dr. David Suzuki - fyrirlestur á málþingi Háskóla Íslands
4. október 2011
Húsfyllir var á fyrirlestri Dr. David Suzuki í Háskóla Íslands laugardaginn 1. október 2011 á málþinginu „Hvað getum við gert?“ Þar ræddi hann um ástæður þess að almenningur og ráðamenn sýna umhverfismálun slíkt fálæti sem raun ber vitni.
Sjá má erindi Dr. Suzuki á vef Háskóla Íslands.
nánar ->
Loftslagsbreytingar og súrnun sjávar
4. apríl 2011
Sjá hér athyglisverða umfjöllun Ríkissjónvarpsins um súrnun sjávar. Þessi þáttur var fluttur í Landanum í gær, 3. apríl.
nánar ->
Áhugaverðir fyrirlestrar um loftslagsbreytingar í Himalæjafjöllum og blaðamennsku
8. nóvember 2010
Nepalski rithöfundurinn og blaðamaðurinn Kunda Dixit flytur tvo opna fyrirlestra við Háskóla Íslands 11. og 12. nóvember n.k. Hinn fyrri um loftslagsbreytingar og bráðnun jökla Himalæjafjalla. Hinn síðari um blaða- og fréttamennsku á átakatímum.
Sjá nánar um fyrirlestrana hér
nánar ->
Grænlandsjökull bráðnar hratt
2. nóvember 2010
Nú nýlega birti NOAA skýrslu sína um Norðurskautið, Arctic Report Card. Í skýrslunni eru ýmsar upplýsingar um stöðu loftslags á Norðurheimsskautssvæðinu. Sérstaklega má benda á þá staðreynd að sumarið 2010 var hitastig á Grænlandi það hæsta frá upphafi mælinga. Að auki sló Grænlandsjökull öll þekkt met í massatapi síðasta sumar. Sjá Loftslag.is.
nánar ->
2010 is warmest year-to-date on record
19. október 2010
THE first nine months of 2010 tied with the same period in 1998 for the warmest combined land and ocean surface temperature on record.
Sjá frétt hér.
nánar ->
Leiðtogafundur um þúsaldarmarkmið
20. september 2010
Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna (Millennium Development Goals, MDG) skal náð 2015 - eftir einungis fimm ár. Til að herða róðurinn hefur aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Ban Ki-moon, hefur boðið leiðtogum heims til fundar í New York dagana 20. - 22. september.
Sjá hér.
nánar ->
Hvalir við Ísland: vistfræði og veiðar
19. september 2011
Vert er að vekja athygli á fyrirlestri Hilmars J. Malmquist: Staða hvala í sjávarlífríkinu við Ísland og lífræðilegar bábiljur um nauðsyn hvalveiðar
Sjá fyrirlestur Hilmars hér.


nánar ->
Ríó +20 – verndun hafsins
15. september 2011
Verndun sjávarkóralla, fiskstofna, hvala, sæljóna, og úthafanna sem þekja rúman helming af yfirborði jarðar eru mál sem hreyfa við fólki. Rányrkja, eyðing kóralla, og súrnun sjávar í kjölfar hnattrænnar hlýnunar eru ógnir sem dyljast fáum sem eftir þeim horfa.
Sjá grein.
nánar ->
Enn fundað um hvalveiðar í Washington
13. september 2011
Á 9. áratug síðustu aldar var sjávarútvegsráðherra tíður gestur í höfuðborg Bandaríkjanna til að útskýra áætlun Íslands um vísindaveiðar á hvölum. Jafnan við 5. mann. Í þessu máli þótti sjávarútvegsráðherrann standa óvenjulega vel í lappirnar en þó var „árangur” fundanna jafnan sá að fækka skyldi veiddum hvölum í þágu vísindarannsókna. Sjá Smugan.
nánar ->
Fundur um mengun hafsins, súrnun og verndarsvæði
2. febrúar 2011
mhverfisráðuneytið boðar til opins kynningarfundar um helstu niðurstöður nýrrar skýrslu OSPAR um ástand Norð-Austur Atlantshafsins. Fundurinn verður haldinn í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu, föstudaginn 4. febrúar kl. 12:00-13:00.
nánar ->
Um hversu mikið hvalkjöt hefur selst til Japan
8. desember 2010
Náttúruverndarsamtök Íslands hafa tekið saman skjal um útflutning á hvalkjöti (langreyð) til Japans og því hversu mikið hefur verið flutt inn (tollafgreitt).
Sjá samantekt hér.
Innflutningur eftir mánuðum 2010
nánar ->
Icelandic Group sækir um MSC-vottun
26. október 2010
Stefán Gíslason, umhverfisfræðingur bendir á að Til skamms tíma hefur MSC nánast verið bannorð á Íslandi. Íslendingar, með LÍÚ og Fiskifélagið í broddi fylkingar, hafa viljað þróa sitt eigið merki, þar sem samtök seljenda setja leikreglurnar í stað þess að eftirláta það hlutlausum aðilum.
Sjá blogg Stefáns Gíslasonar.
nánar ->
Arnþór Garðarsson: Athugasemdir við skýrslu Hagfræðistofnunar
10. apríl 2010
Arnþór Garðarsson, prófessor við Líffræðistofnun Háskóla Íslands, hefur í grein á visir.is gert athugasemdir við skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um þjóðhagslega hagkvæmni.
nánar ->
Sprengja stíflur til að bjarga laxastofni
16. nóvember 2009
Tillögum Verndarsjóðs villtra laxastofna (NASF) um framtíðarnýtingu eins víðáttumesta votlendis Evrópu verður fylgt í þaula af frönskum stjórnvöldum. Þau hafa ákveðið að tvær stíflur á vatnasvæðinu, sem eru nálægt Mont-Saint-Michel, frægum ferðamannastað í Normandy, verði fjarlægðar.
Sjá frétt visir.is
nánar ->
© Allur réttur áskilinn 1998-2008, Náttúruverndarsamtök Íslands - Reykjavíkurakademían, Hringbraut 121, 107 Reykjavík - S: 551 2279 Netfang: nsi@mmedia.is